
13. ágúst 2025
Meirapróf í fjarnámi – september
Næsta meiraprófsnámskeið í fjarnámi hefst 11. september. Vertu tilbúinn fyrir verkefni haustsins með nýjum réttindum í höndunum.
Aktu inn í framtíðina með AKTU. Næsta meiraprófsnámskeið í fjarnámi hefst fimmtudaginn 11. september. Grunnnámið er tvær helgar og framhaldsnámið allt að tvær helgar.
Við hjá AKTU leggjum áherslu á að námið sé bæði áhugavert og hagnýtt. Kennarar okkar hafa áratuga reynslu í ökukennslu og miðla þeirri þekkingu til nemenda með skýrum hætti.